Feb 16 2012

Þjónkun Jóhönnu Sigurðardóttur við fjármálaelítuna

Category: Fréttiradmin @ 9:07 pm

Það þarf engan að undra nýfallinn dóm í Hæstarétti sem kemst að þeirri niðurstöðu að brotið hafi verið á greiðendum gengistryggðra lána. Þetta þarf ekki að koma neinum á óvart nema þá núverandi valdhöfum sem ætluðu í þjónkun sinni við eignaelítuna, að láta almenning finna til tevatnsins.

Og það tókst í mörgum tilfellum. Eftir liggur slóð heimila og fyrirtækja í rústum, börn sem ekki fá fyrir helstu nauðsynjum og nýir eigendur banka og fjármálafyrirtækja, vinir ríkistjórnarinnar, raka inn hagnaði af þessum hörmungum.

Það er ein krafa á borðinu, hún er sú, að þessi ríkisstjórn fari frá og að boðað verði til kosninga. Stjórn Jóhönnu Sigurðar hefur mistekist endureisnarverkefnið sem til hennar var lagt, henni hefur mistekist hlutverk sitt í grundvallaratriðum.

Kosningar eru ofureðlileg krafa.


Feb 16 2012

Ísland dragi aðildarumsókn til baka

Category: Fréttiradmin @ 12:09 am

Frelsishreyfingin er á móti inngöngu í Evrópusambandið og leggst gegn því að  aðildarviðræðum verði haldið áfram. Við sjáum engan efnahagslegan ávinning af aðild og teljum reyndar að stjórnvöld ættu að eyða tíma sínum og fjármunum í raunverulega endurreisn í stað þess að láta þingmenn, ráðherra og starfsmenn opinberra stofnanna leika sér á framfæri hins opinbera í Brussels og Strassburg.

Eitt af því mikilvægasta sem þjóðin á, eru þau réttindi sem að Hafréttarsáttmáli Sameinuðu Þjóðanna færir Íslendingum í formi 200 mílna fiskveiðilögsögu og varla þarf að minna Íslending á að 40% af tekjum ríkisins koma af sjávarfangi.

Þarna er talað um strandríkisréttindin sem framseld verða til Evrópusambandsins við aðild. Árið 1975 færðu Íslendingar út landhelgi sína í 200 mílur, fyrstir þjóða. Í dag er öllum strandríkjum tryggð þessi 200 mílna lögsaga. Það væri því ekki einungis óviturlegt heldur einnig smánarlegt, að gefa frá sér þessi yfirráð til ríkjasambands þar sem við hefðum 0.6%-0.8% þingstyrk en það yrðu áhrif okkar í Evrópuþinginu.

Frelsishreyfingin leggst einnig eindregið gegn innleiðingu annarar myntar og mótmælum við málflutningi fjármálageirans gegn krónunni. Málflutningur auðmanna og athafnamanna gegn krónunni er til þess fallinn að grafa undan öryggi almennra launþega sem hingað til hefur lifað við þó nokkurn jöfnuð á lágt atvinnuleysi.


Feb 13 2012

Afnám bankaleyndar

Category: Fréttiradmin @ 8:52 pm

 

Frelsishreyfingin krefst þess að bankaleynd verði afnumin strax. Einnig fer Frelsishreyfingin fram á að rannsóknarnefnd verði sett á fót til þess að fara yfir meinta endurreisn fjármálakerfisins.

Það er óásættanlegt að Íslenskur almenningur skuli ekki fá upplýsingar um eignarhald á bönkum sem lent hafa á höndum ríkisins, hvorki um kaupverð – afskriftir, né um hverjir séu raunverulegir eigendur.

Almenningur hefur fengið nóg af launhelgun ríkisfjármálanna og ráðherraræði Steigríms J. Sigfússonar. Í aðdraganda síðustu kosninga mælti fjármálaráðherra eins og velflestir aðrir fyrir gagnsæi og bættri stjórnsýslu. En þess í stað þá höfum við kynnst mestu leyndarstjórn í sögu landsins, í boði núverandi ríkistjórnar. Íslendingar eiga að afnema bankaleynd.


Feb 13 2012

Afnám kvótakerfisins

Category: Fréttiradmin @ 8:49 pm

 

Frelsishreyfingin fer fram á skilyrðislaust afnám kvótakerfisins og að komið verði á byggðastefnu. Innköllun aflaheimilda hefjist tafarlaust.

Gefa á frjálsar smábátaveiðar. Að útgerðum verði gert að landa öllum afla á fiskmarkaði hér á landi eru forsendur þess að hægt verði að koma á mannsæmandi lífsskilyrðum hér á landi.

Það er afstaða stjórnvalda í dag að byggðastefna í fiskveiðistjórn sé þjóðhagslega óhagkvæm og hafa stjórnvöld látið vinna fyrir sig skýrslur og greinargerðir þessu til stuðnings. Við í Frelsishreyfingunni sjáum ekki að innköllun aflaheimilda sé til neins ef ekki stendur til að leyfa fólki víðs vegar um landið að sækja sjóinn.

Þess vegna ber að hafa varann á og rétta hlut landsbyggðarinnar.


Feb 13 2012

Breytingar á barnalögum

Category: Fréttiradmin @ 8:40 pm

 

Frelsishreyfingin fordæmir réttarstöðu Íslenskra feðra og barna og hefur samþykkt eftirfarandi kröfur;

1. Að ákvæði verði sett í barnalög sem heimila dómurum að dæma sameiginlegt forræði í forræðisdeilum.

2. Að ákvæði verði sett í barnalög sem heimila þeim börnum sem eru í jafnri búsetu hjá föður og móður, að vera með skráð lögheimili á báðum stöðum.

3. Að meðlagsgreiðslur séu felldar niður þegar um jafna búsetu er að ræða.

4. Að feður verði skilgreindir jafn hæfir uppalendur í lögum, þegar kemur að forræði og búsetu.